Mér finnst vinnsluminnið í tölvunni minni ekki alveg nógu afkastamikið svo ég er að spá í að fá mér annað og hafa tvö vinnandi vinnsluminni í henni. Ég er bara að spá hvort einhver getur sagt mér hvað þið ráðleggið þá til þess. Pabbi minn prófaði þetta einu sinni við sína tölvu en hún fraus bara vegna þess að þau voru af svo ólíkri gerð þannig að ég er bara bara að pæla í því hvort að það þurfi ekki bara að hafa þau af sömu tegund. Bara að fá staðfestingu.
————————————————