Hversu öruggur ert þú?

N.k. þriðjudag stendur GSSLausn ehf. fyrir kynningu á öryggislausnum frá hinum þekkta og viðurkennda framleiðanda ZyXEL. Tveir af æðstu stjórnendum ZyXEL í Evrópu munu koma og kynna allar helstu nýjungar í breiðbandslausnum og þá sérstaklega m.t.t. til öryggismála.

Eftir að farið var að bjóða uppá ADSL tengingar hefur margfaldast fjöldi þeirra sem eru sítengdir við netið. Jafn þægileg og sítenging er í daglegri notkun getur hún líka verið greið leið fyrir óvandaða tölvuþrjóta. Margir sem eru breiðbandstengdir búa því við falskt öryggi og vita ekki að til eru sérsniðnar lausnir við hverju vandamáli.

Kynningarnar eru tvískiptar. Fyrir hádegi er áhersla lögð á lausnir fyrir heimili og fyrirtæki en eftir hádegi er kynning sem er sérsniðin fyrir þarfir endursala, Internetþjónustuaðila, verkfræðinga og ráðgjafa.

Ekkert þátttökugjald er innheimt. Allar nánari upplýsingar eru á http://www.gsslausn.is