Mig langar til að fá að biðja ykkur um hjálp. ég hef séð alls kyns flott tól t.d. eins teljarin á formulu1 síðunni. Þar segir að það séu xx margir dagar og xx margar klst og xx margar mín og xx margar sec þangað til Formúla 1 byrjar.

Ég er sjálfur með vefsíðu og skrifa hana mér til gamans. Reyndar er hún orðin það stór að ég hef hug á að sækja námskeið eða fá hjálp til að skrifa hana í framtíðinni en þetta má víst ekki kosta peninga því ekki fær maður mikið af þeim miðað við þann tíma sem fer í verkið. Í dag er síðan skrifuð í frontpage og næsta skref hjá mér er að skrifa hana í Dreamvaver en ég hef ekki ákveðið hvenær ég gerið það.

þá er það spurningin getur einhver hjálpað mér með t.d. svona afturábak teljara. þarf ekki endilega að telja sek en breitir ekki öllu.

Vinsamlegast skrifið innlegg hér að neðan eða sendið mér póst
kær kveðja
Elvar Örn Reynisson
www.veitingavefurinn.is