Nú er mér nóg boðið !!!!!!

Ég bara varð að láta heyra í mér varðandi þjónustuna hjá Íslandssíma. Eftir að þeir tóku yfir halló! þá hefur þjónustan þar snarversnað og fólk þarf að bíða AMK 20 mínútur eftir að þeir svari. En það er nú ekki það sem ég ætlaði að tala um hérna heldur er það þannig með vexti að ég lét loka símanúmeri hjá þeim í haust eftir að ég var kominn upp í dágóða upphæð á reikningi og lét loka númerinu í haust agúst/september og fór niður í sóltún að tala við þessa háu herra og skrifaði undir blað þess efnis. Svo allt í lagi með það en ég fer að fá rukkanir fyrir áskriftargjaldinu mánuð eftir mánuð og í desember fer ég í kringluna tvisvar og þeir hringja niður eftir og segja að ég hafi aldrei sagt upp númerinu ég sagði víst og sagði honum alla söguna hann segir mér að koma aftur seinna sem ég geri og þeir segja ekkert hafi fundist og við segjum upp númerinu í annað skipti. Maðurinn sem var að afgreiða skyldi að ég væri óhress með að þurfa að borga fyrir tíma sem ég notaði símann ekkert eftir að ég sagði númerinu upp. Þeir hjá Íslandssíma stóðu á því fastar en jörðinni að þessi mánaðargjöld skyldi ég greiða. Síðan fyrir stuttu síðan sendi ég email á þjónustuverið og vil láta fella þetta niður og fæ ekkert nema skæting í staðinn talað um að það verði ekki meira fellt niður enda sé búið að minnka skuldina um þetta mikið og fleira verði ekki fellt niður og hún sagði síðan SVO VIL ÉG MINNA ÞIG Á SKULD ÞÍNA VIÐ FYRIRTÆKIÐ !!!!!

Mér fannst þetta argasti dónaskapur og ákvað að láta í mér heyra svo að fólk fái að vita hverslags skítafyrirtæki Íslandssími er og ég hvet alla til þess að hætta í viðskiptum við þá eða vera ekki jafn vitlausir og ég að halda að þetta væri ágætis fyrirtæki. Segið mér síðan hvað ykkur finnst um þetta allt saman. Tak