Þegar ég smelli á [Skirmish] takkann og þaðan á [Customize battle] þá ættu að birtast 2 takkar [Use map] og [Random map] ekki satt? Hjá mér er enginn [use map] takki en [random map] virkar nákvæmlega eins og [use map], það stendur bara random map á honum alveg þangað til ég smelli á hann, þá sést bregða fyrir use map í svona hálfa sek. meðan takkinn slidar burtu. (Ég hef séð önnur eintok af leiknum þannig að ég veit hvernig þetta ætti að vera.) Ég prófaði að plástra leikinn en þetta breyttist ekkert við það. Hefur einhver rekist á e-ð svipað?

útskýrði það e-ð ef ég segði að ég keypti leikinn í BT?

PS. Þetta er í annað sinn sem ég skrifa þetta. Fyrst leit eitthvað vitlaust út í preview-inu og ég ýtti á bakktakkann á vafranum en ekki bakktakkann á síðunni og þarmeð þurrkaðist allur textinn burt. Ég reyndi að ýta á forward en “page has expired”. :P