Man einhver eftir Caesar III? Ég prófaði Caesar IV um daginn, var vægast sagt ekki hrifinn, og langar þess vegna að kíkja aftur á Caesar III sem var algjör snilld í gamla daga.

Málið er að ég man hvað hann var böggaður þangað til patchinn kom út fyrir hann og ég nenni ekki að spila hann svoleiðis. Svo ég fór að leita að patchinum fyrir hann. Ég fann fullt af linkum en þeir virðast allir vera löngu dauðir.

Er einhver sem lumar á patchinum (ég held að það hafi bara komið út einn) eða link á hann og getur reddað mér?

Takk.