Nú fer að hefjast LAN í tækniskólanum klukkan 20:00 föstudaginn 12.mars (semsagt eftir klukkutíma) sem mun standa yfir fram á sunnudag. ég hvet alla HoN spilara til að mæta og sýna hvað þeir gera enda verður spilað grimmt til sigurs í fyrsta Heroes of Newerth mótinu á íslandi (viljum við meina).

Það skiptir engu þó þið séuð ekki með fimm manna lið. Allir geta mætt og troðið sér inn í þar sem vantar uppá.

Það er frítt inn en þeir sem eru yngri en 18 þurfa leyfisbréf frá foreldrum til að votta að þeir megi sækja mótið.
Síðast mættu um 50 manns og verður gaman að sjá hvort við náum að slá það met.

Allir velkomnir hvort sem þið eruð í skólanum eða ekki og verða pizzur og gos til sölu á staðnum.

Gengið er inn bakdyramegin í íþróttasalinn (beint fyrir neðan hallgrímskirkju)

Vona að ég sjái sem flesta! :D
END OF LINE