ég verð nú að spyrja!

kannast eitthver hérna við þennan leik?

það ættu nú að vera eitthverjir eldri hugarar allavega hérna sem kannast við hann :)

Ég downloadaði honum (löglega don't worry ;D) í fyrradag og ég er bara alveg hooked á honum :D

Smá um hann.

þú byrjar með því að setja upp stöð eitthverstaðar í heiminum (ég setti hana á Ísland *5*), með henni færðu nokkra hermenn og 3 flugvélar (2 herþotur og eina transport). Svo áttu bara að skjóta niður UFO's og sendir herþoturnar til að plaffa þá niður. svo verðuru að senda inn hermenn þar sem að UFO-arnir brotlentu og þá stjórnar þú sveit af hermönnum sem að koma á svæðið og eiga að stúta geimverunum.
Svo eru Nokkrar stórþjóðir sem að senda manni í hverjum mánuði paycheck uppá hversu vel þeim finnst maður vera að standa sig. ef að þú stendur þig ekki vel þá byrja þjóðirnar að minnka peninga sendingarnar og sumar semja við geimverurnar (sem að þýðir að maður fær engann pening frá þeim framar, Indverjar eru alltaf að svíkja mig =( ). EN já hefur eitthver prófað hann?

þið getið downloadað honum (JÁ! Löglega! ;D) hérna.

http://www.abandonia.com/games/38/download/UFOEnemyUnknown.htm