Eins og nafnið gefur að kynna, ætla ég að tala um Hearts of Iron 2, eða réttara sagt spyrja.

Sko, þannig er mál með vexti, að ég er að vinna í save-i sem Nationalist Spain.
Ég joinaði Axis bandalagið og réðst á Frakkland á sama tíma og Þjóðverjar réðust á Benelúx löndin, síðan mætti ég Þjóðverjum svona eiginlega fyrir miðju Frakklandi (Þjóðverjar náðu París og öllu norðar, ég öllu sunnan við París, og við “skiptum” þessu nokkuð jafnt) en síðan, eins og gerist venjulega með að Vichy France skapast og Þjóðverjar fá Vestri helming Þýskalands, þá gerist það ekki.
Ég vildi nefnilega ekki fá þetta Vichy France, svo ég skipti yfir í Þýskaland á þeim tíma þar sem Vichy France er venjulega skapað og hafnaði boðinu.
Svo get ég ekki annex-að Frakkland því þeir eiga svo fáránlega margar nýlendur í Afríku og Asíu, og meira að segja eitthvað í Ameríku!
Er engin önnur leið að eignast landssvæði alveg án þess að annexa landið allt?

E.s. gæti verið að ég þyrfti að ná öllum landssvæðum Frakklands í Evrópu? Þeir eiga nefnilega Korsíka eyjuna þarna í Miðjarðarhafinu eftir.

Með fyrirfram þökk,
Zweistein.
Chuck Norris is the reason why Waldo is hiding.