Vill benda mönnun á demo af leiknum sem er hýst hérna á Huga.

Það er búið að gjörbreyta leiknum til hins góða og komnir inn virkilega sniðugir hlutir í leikinn einsog trúarbrögð, hægt er að sníða ríkisstjórnina að skoðunum sínum eða hentisemi.

Svo er búið að gjörbreyta bardagakerfinu og allur hernaður byggist í kringum það að koma frekar upp úrvalshermönnum sem hægt er að uppfæra fyrir mismunandi gerðið af bardögum og í staðinn fyrir að hafa árásar og varnargildi hafa hermenn og vinnumenn eingöngu afl sem reiknast svo út með bónusum í varnar eða árásargildi þar sem t.d. bogmenn eru með meira varnargildi í borgum og hæðum enn á flatlendi.
We are the hollow men