Minn versti er án efa þegar að ég lenti á gaur sem að þóttist vita og geta allt. Ég var Allied og hann var Soviet.

Þetta var minn þriðji leikur sem ég spilaði. Eftir u.þ.b. fimmtán mínútna smástríð um yfirráð yfir þremur Oil Riggum, þá náði ég loks yfirhöndinni. Ég setti upp fullt af vörnum í kringum svæðið og var viss um að ekkert gæti gerst. En þá skullu hrikalegheitin á.

Undan sjóndeildarhringnum komu fjórir Kirov loftbelgir. Ég átti ekki séns, enda voru þeir komnir of nálægt varnarlínum mínum. Eg byggði I.F.V. skriðdreka og Patriot Missile í ofvæni en það var of seint. Einn fór á Barracks, annar á War Factory, sá þriðji fór á Construction Yard og sá síðasti á Ore Refinery. Þetta var búið og gert. ég seldi allt og gafst upp.

Royal Fool (RoyalNuke @ WOL)
Bringing smiles to sappy faces