Westwood gáfu út þann 12. október kortagerðarforrit fyrir Emperor: Battle For Dune. Hægt er að sækja það <a href=“ftp://ftp.westwood.com/pub/emperor/EmperorMapEditor.zip”>hér</a>. Einnig er hægt að sjá skjáskot af forritinu <a href="http://westwood.ea.com/games/emperor/english/05_community/DuneEditor2.jpg">hér</a>.

Kortagerðarforritið er frekar nýtt af nálinni, og því getur fólk búist við göllum. Ég hef ekki haft tækifæri til að prófa það, en það hefur fengið ágætis viðtökur frá Emperor-samfélaginu. Ég hvet alla sem eiga Emperor til að ná í það og prófa að hanna einfalt fjölspilunar-kort!