Electronic Arts hafa ákveðið að breyta myndunum framan á Red Alert 2 kössunum og hulstrunum. Á þeim má sjá New York vera eyðilagða, en það er ekki talið við hæfi miðað við atburði seinustu daga. Því hafa Electronic Arts boðist til að skipta út leiknum fyrir nýjar útgáfur. Verslanir munu ráða ef þær vilja þetta.