Nú á dögunum buðu Westwood Studios nokkrum fréttamönnum GameSpot.com að prófa nýjustu útgáfuna af Yuri's Revenge, aukapakkanum fyrir Red Alert 2. Í kjölfarið uppgötvuðu þeir mörg ný vopn og byggingar sem að Yuri's Psychic Army munu stjórna. Hér fylgja upplýsingar um nokkur af þessum áhugaverðustu:

-Grinder-
Eins og nafnið gefur til kynna þá má nota þessa byggingu til þess að “selja” tæki og menn fyrir peninga. Tæki gefa fullt verð, en hermenn einungis hálft.

-Gatling Tower-
Þetta vopn skýtur gríðarsterkum byssuskotum. Eftir því sem að hlaupið hitnar meira, því hraðar skýtur vopnið skotum og gerir því meiri skaða. Einnig virka skotin gegn flugvélum.

-Mastermind-
Þetta tæki getur yfirtekið huga allt að fimm hermanna og tækja í einu. Ef að fleiri bætast við ofhitnar tækið smátt og smátt þar til það springur.

-Gatling Tank-
Virkar eins og Gatling Tower, nema að þetta tæki er hægt að hreyfa til.

-Bio Reactor-
Þessi nýja orkulind kemur í staðinn fyrir orkuverin sem að Bandamenn og Sovétríkin nota. Þegar að einhver eins og Mastermind hefur stjórn yfir óvinahermanni er hægt að senda hann inn í þessa byggingu. Hægt og rólega deyr hermaðurinn, en í staðinn færist lífsorka hans yfir til bygginga og vopna stöðvarinnar.

Ég mun ekki nefna fleiri, en bendi í staðinn á <a href="http://gamespot.com/gamespot/stories/previews/0,10869,2779759,00.html">umfjöllun GameSpot</a>. Þar eru mun ítarlegri og meiri upplýsingar.

Ef að tengill virkar ekki:
http://gamespot.com/gamespot/stories/previews/0,10869,2779759,00.html