Sælir C&C menn…

Snillingurinn hann DeeZire sem stóð fyrir besta modi fyrir Red Alert 2 að mínu mati, sem hét einmitt DeeZire, er búinn að gefa út nýtt mod, Pro:Gen fyrir Zero:Hour.

Ég er nú bara nýbyrjaður að spila modið og kannski ekki alveg tilbúinn til að segja allt í sambandi við modið en ég vildi endilega láta ykkur vita.

Ég held að í dag sé þetta mod án efa það allra vandaðasta sem er komið á sjónarsviðið, DeeZire hefur alltaf lagt rosalega mikla áherslu á smáatriði, hér er linkur á listann af features, fixes og öllu heila klabbinu - http://www.deezire.net/downloads/generals/progensofar.t xt - þetta er alls ekki lítill listi og gefur manni góða hugmynd hvað hefur verið gert, ef maður nennir að lesa það þ.e.a.s.. Allir Generalar hafa fengið breytingar, 3 hafa bæst við, svokallaðir Boss Generals. Hann ætlaði nú að hafa þetta þannig að það þyrfti að unlocka þeim en honum tókst ekki kóða það í þetta skiptið. Munið eitt með Boss Generals að þeir virka ekki sem tölvu andstæðingar, það náðist ekki að implementa AI í þá. Leikurinn virkar enn í öllum modes, sem er oft ekki með önnur mod, semsagt Single Player campaignið á það til að skemmast.

Ég vildi að ég gæti sagt ykkur meira en ég ætla bara að spila aðeins meira og blaðra svo.

V2.1 er komin út og ég ætla að reyna fá það hingað á huga fljótlega.

Stærðin á modinu er 13.91MB og er hægt að fá hér…

http://www.deezire.net/modules.php?name=Downl oads&d_op=viewdownloaddetails&lid=13&ttitle=Pro:Gen#dld etails

ATH! Bil eiga það til að myndast í urlum, munið að fjarlægja þau.

Takk,

Shagua