Ég kíkti á Emperor heimasíðuna, og hún er rosalega flott. Það er að finna allskyns hluti, þ.á.m. söguþráð, vopn, stærri og minni fjölskyldur og heimaplánetur stóru fjölskyldnanna. Þið getið komist þangað auðveldlega: Smellið bara <a href="http://westwood.ea.com/games/emperor/english/html/home.shtml">hér</a>!

Ég vildi líka minnast á nokkra aðra hluti í sambandi við Emperor. Þeir sem spiluðu C&C og RA muna sjálfsagt eftir valinu sem maður fékk stundum á heimskortinu. Það var t.d. hægt að ráðast annaðhvort á NOD herstöð við ströndina eða taka að sér að hertaka bækistöðvar þeirra í fjöllunum. Það sama mun vera hægt í Emperor.

Þú gætir t.d. hætt á að reita Harkonnen fjölskylduna til reiði með því að hertaka eina af rannsóknarstöðvum þeirra eða taka til fanga mikilsvirtan herforingja hjá Atreides fjölskyldunni. Möguleikarnir eru næstum óendanlegir!

Einnig verður hægt að hrekja fjölskyldu af Dune og alla leið aftur á heimaplánetu þeirra. Seinna gætu sú fjölskylda allt í einu komið aftur með mun stærri her en áður fyrr og hefnt sín á þér!

Svo verður hægt að færa til hliðar herdeildir og setja þær í þjálfun. Seinna meir verður sú deild kannski orðin mun hæfari og betri en flestar aðrar!