Nú hafa herramennirnir verið svo góðir að láta okkur fá dagsetningu fyrir Command and Conquer: Generals.

Þessi snilldarleikur átti fyrst að koma út 21. janúar 2003. En þeir vildu breyta leiknum meira svo að þeir seinkuðu leiknum um ákveðinn tíma en þeir vildu ekki segja með vissu hvenær leikurinn yrði til. En nú eru þeir nokkuð vissir að leikurinn sé eiginlega tilbúinn svo að þeir komu með nýja dagsetningu: 11.febrúar 2003. Ég er nokkuð viss um að þessi dagsetning muni haldast en ég er þó bara 95% viss. En þó, leikurinn mun koma einhvern tímann, þótt hann komi í febrúar eða í mars, og hann verður líklegast fjandi góður. Fylgist endilega með á www.generalsbunker.com og www.generalsxtreme.com, bara í dag sá ég í bunkernum 10 ný myndbönd úr Generals!!! En ég vildi bara láta vita af þessu og ég segi bara takk fyrir mig!

Kveðja, Sigtryggur.