Liðin sem voru í pottinum voru: Spánn, Tyrkland, Skotland, Noregur, Rússland, Slóvenía, Wales, Króatía, Lettland og Holland. En þetta var dregið svona eins og hér segir:

Lettland - Tyrkland
Skotland - Holland
Króatía - Slóvenía
Rússland - Wales
Spánn - Noregur

Eins og allir vita þá drógust Skotar á móti Hollandi og það hefði ekki verið slæmt að fá Holland hingað til lands til að spila á Laugardalsvelli, en leikirnir fara fram 15. og 16. nóvember og 18. og 19. nóvember.