Andrés Escobar Þetta er fyrrum varnarmaður Kólumbíu sem að varð fyrir því óláni að skora á móti gestgjöfum Bandaríkjamanna í heimsmeistarakeppninni í fótbolta árið 1994. Hann var síðan skotinn örfáum dögum síðar er hann kom heim vegna þessa sjálfsmarks, það var þann 2. júlí 1994 en Escobar skoraði markið þann 22. júní 1994. Það var eina sjálfsmarkið sem var skorað á þeirri heimsmeistarakeppni.