Leikmenn írska landsliðsins vilja ekki fá brottrækan fyrirliða sinn, Roy Keane, aftur til liðs við sig. Írsku landsliðsmennirnir sendu frá sér tilkynningu þess efnis á þriðjudag en samkvæmt henni eru leikmenn liðsins í engum vafa um að hagsmunum liðsheildarinnar sé betur þjónað án Keanes. Í yfirlýsingunni kemur einnig fram að leikmenn bera ekki kala til Keanes og að þeir hlakki til Heimsmeistarakeppninnar og fagni þeim mikla stuðningi sem áhorfendur sýni þeim, bæði í Japan og á Írlandi.
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????