Karembeu missir af HM
Miðjumaðurinn Christian Karembeu verður ekki með Frökkum á HM þar sem hann er meiddur á nára. “Ég verð ekki með og ég virði ákvörðun þjálfarans,” sagði Karembeu. Frakkinn meiddist í bikarúrslitaleik með Olympiakos í síðustu viku. Karembeu segir að Roger Lemerre hafi valið Willy Sagnol í sinn stað en reiknað er með að Karembeu þurfi fjórar vikur til að ná sér að fullu. Lemerre vildi hins vegar ekki taka neina sénsa þar sem svo stutt er í keppnina.

ég er ekki viss hvort hann ætti að vera í franska landsliðinu honum hefur ekki gengið mjög vel í ár hjá olympiakos