Jææja, fjandi flottur leikur þessi. Kom góða skapinu aftur í lag eftir svekkjandi úrslit á Laugardalsvellinum. Þjóðverjar áttu leikinn í 89 mínútur og voru þeir hugsanlega að spila sinn flottasta leik hér í undakeppninni.

Varnarleikur Slóvaka var reyndar… enginn.

Það er alltaf jafn gaman að sjá hvítu riddarana í skínandi brynjunum sínum ríða inná orrustuvöllinn, reiðubúnir til baráttu og slátra svo andstæðingi sínum.

Mörkin:

13' (0-1) Podolski (Þýskaland)
25' (0-2) Ballack (Þýskaland)
36' (0-3) Schweinsteiger (Þýskaland)
58' (1-3) Varga (Slóvakía)
72' (1-4) Podolski (Þýskaland)