Já, nú getur maður verið ánægður með hann Eggert Magnússon formann KSÍ.
Hann bæði er með sambandið í miklum gróða og svo er hann að redda landsleikjum við eitthverjar stærstu þjóðir í heimi. Þegar er búið að fá leiki gegn Englendingum og Japönum og þau koma með sín allra sterkustu lið. Æfingaleikir við amatöra eins og Andorra eru svo vonandi liðin tíð.
Síðan er mjög líklegt að við fáum allar stórstjörnurnar frá Ítalíu í heimsókn í Laugardalinn í ágúst og það verður án efa frábært fyrir landsliðið sem og áhorfendur.

Því má svo bæta við að Ísland á kost á allt að 5000 miðum gegn Englandi og Japönum, en leikirnir fara fram á heimavelli Manchester City.