Já eftir að Íslendingar eru dottnir út er ég búinn að ákveða með hverjum ég ætla að halda. Það eru Walesararnir auðvitað! Þeir eiga vonandi eftir að sigra Rússana í umspilinu. Þeir eru með fínt lið og góðan þjálfara. Leikmannahópur þeirra býr yfir mönnum eins og auðvitað Ryan Giggs, Gary Speed, Simon Davies og John Hartson. Svo hafa þeir markmanninn Paul Jones og vængmanninn Matthew Etherington. Svo er þjálfarinn gamli reynsluboltinn sem spilaði m.a. með Man Utd, Chelsea og Waleska landsliðinu! Ég vil sjá þessa í úrslitakeppni EM!