Hvaða bull er þetta um að Beckham hafi verið hetja Englands á móti Argentínu? Það var Owen sem fiskaði vítið, er einhver að spá í því?(Til gamans má skoða Beckham rétt áður, til að fá þetta í samhengi) Hann skorar úr einu víti, er hetja leiksins og fólk missir legvatnið yfir því hvað hann sé mikið æði, “uppáhalds sonur Englands”! Hvað eruð þið að hugsa gúbbífiskanir ykkar? Eruð þið svona fljót að gleyma. Beckham negldi í Simeone og það eru enginn vafi á að þessi brottrekstur sendi England heim. Nú skorar hann eitt víti sem hann kom ekki einu sinni nálægt með að fá, og þá er tala um “uppreisnaræru Beckhams” og “Beckham nær fram hefndum”. Hann klúðraði big time og þetta víti bætir engan veginn fyrir það. Beckham er bjáni, en þið eruð ennþá meiri bjánar ef þið teljið hann hetju.