Nú er nokkuð liðið á hm og hef ég svona gert mitt besta til að fylgjast með en svo hef ég heyrt á nokkrum stöðum að síðustu leikirnir verði í opinni dagskrá. Það á að vera eitthvað í sambandi við að allir stórir íþróttaviðburðir eigi að vera opnir fyrir öllum að fylgjast með. Veit einhver hérna hvort eitthvað sé til í þessu?? því ég er hvorki með stöð 2 né sýn í augnablikinu og það væri frábært að fá að vita hvort úrslitaleikirnir verði í opinni dagskrá.