Dauðariðillinn í sumar;o) Dauðariðillinn í sumar er nokkuð sterkur og allt getur gerst í honum því allar eiga jafnar líkur til að vinna hann. Ég ætla að nefna liðin í honum:

England
David Beckham er nú ótrúlega góður í aukaspyrnum en er samt nýbúinn í alvarlegum meiðslum en er kominn á fínt strik aftur.England er þó með marga aðra góða menn tildæmis Steven Gerrard, Michael Owen, Rio Ferdinand, Sol Campbell og Paul Scholes. Þetta eru allt lykilmenn Englands en Englandi sárvantar einn vinstar kantmann í anda Ryan Giggs. Englandi er spáð 2 sæti í riðlinum og vonandi gengur þeim sem best á HM því þeir eru með marga góða menn úr ensku deildinni og mörgum öðrum deildum sem vilja fá að spreyta sig á HM.

Argentína
Argentína er með mjög sterkt lið á HM og þar á meðal eru þeir með stjörnurnar Hernand Crespo og Gabriel Batistuta og margir aðrir.
Argentínu menn eru með þriggja manna vörn mjög sterka og þar eru Roberto Ayala, Walter Samuel og Jose Chamot að verja markmannssvæðið fyrir andstæðingunum. Þeir eru líka með mjög sterkan markmann og hann heitir Germáin Burgos og Roberto Bonano sem varamarkvörður og er hann að reyna að komast í Barcalona.

Nígería
Nígeríumenn hafa sýnt það margoft að þeir eru alltaf líklegir til að koma á óvart. Þeir eru með sterka vörn og sókn og allt getur gerst hjá þeim því þeir hafa viljann til að vinna og ef maður hefur viljann getur maður gert það. Þeim er samt spáð neðsta sæti í riðlinum.

Svíþjóð
Svíar hafa á góðu liði að skipa og með Freddie Ljungberg og Henrik Larsson upp á sitt besta gætu þeir unnið hvaða lið sem er. Enda sáuð þið það þegar þið horfðuð á England Svíþjóð og þá náðu þeir að gera jafntefli með þvílíku marki uppí slánni sem skotið var fyrir utan teig og markvörður Englandinga réð hreint ekki við það og er þeim að ganga vel hingað til og vonum bara að þeim gangi sem best.

Nú er það komið sitt hvað um liðin og mig langar að sína ykkur hvernig ég held að dauðariðillinn fari:

1.Svíþjóð
2.England
3.Argentína
4.Nígería

Svona held ég að það fari og ekki vera með eitthvað röfl eins og ertu heimskur eða eitthvað því þið vitið að það er miklu skemmtilegra að svara jákvætt og segið mér hvernig þið haldið að það fari. Þetta er svolítið skrítin spá ég veit það en þetta er mitt álit.

Takk fyrir
SWEPPUR
Habibi expert