Robbie Fowler skoraði jöfnunarmark Englendinga í æfingaleiknum gegn Kamerún í gær. Hann segir að liðið verði að skipta um gír eigi það að vinna Svía í næstu viku. Englendingar óttast enn að þeir David Beckham og Kieron Dyer verði ekki orðnir leikfærir gegn Svíum og Fowler er ekkert allt of bjartsýnn. Fowler hefur verið meiddur að undanförnu en Sven Göran ákvað að leyfa honum að spila. Fowler sagðist hafa verið stirður en var ánægður með leik sinn. Hann var spurður að því hvort hann ætti séns á að verða í byrjunarliðinu gegn Svíum. Fowler sagði: “Það verður erfitt fyrir mig. Michael Owen og Darius Vassell eru að spila vel en ég er ekki slæmur leikmaður. Ég er sannfærður um hvað ég get. Ef ég verð laskaður segi ég stjóranum það. Ég verð að vera í hundrað prósent standi.”
-maniggi irc nick-Hvar a netinu get eg downloadað adsl ??????????????????????????