Miðjumaður Real Madrid Steve McManaman vonast enn til þess að verða einn af þeim 23 sem Sven Göran landsliðseinvaldur kemur til með að velja í landsliðshópinn þann 9. maí nk.

McManaman hefur ekki spilað með landsliðinu síðan í október á síðasta ári þegar Englendingar gerðu 2-2 jafntefli við Grikki.
Sven Göran sagði við blaðamenn í gær að enginn sé algjörlega úr myndinni.

“…Ég sá McManaman spila á móti Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og hann átti þátt í því að Real er komið í úrslitaleikinn”

Þetta voru fyrstu skilaboðin til fyrrum leikmanns Liverpool um að hann væri enn inni í myndinni hjá Sven.


“…Ég hef alltaf vonast eftir því að verða einn af 23 og ég hef aldrei gefið upp þá von. Ég og Sven náum vel saman og samstarf okkar hefur verið gott” sagði McManaman.

Ekki spurning að Makk Namminamm og Sven eru “like this”

gras.is HM kveðjur stebbi