Victor Pua landsliðsþjálfari Úrúgvæ á í nokkrum vanda varðandi sóknarlínu liðsins. Pua á í útistöðum við Dario Silva en framherjinn sakaði þjálfarann um að hafa komið af stað sögum um að hann hafi nýtt sér þjónustu vændiskvenna. Silva dró kenningu sína síðar til baka en það breytir ekki því að þeir virðast ekki hafa sæst.
Pua tók við liði Úrúgvæ af Daniel Passarella í febrúar á síðasta ári og hefur átt í nokkrum vandræðum. Það er alvarlegt mál fyrir þjálfarann ef hann getur ekki notað Silva því þjálfarinn hefur lagt áherslu á þéttan miðjupakka og oft hefur Silva verið eini framherjinn. Annar kostur er að nota Diego Forlan en honum hefur ekki gengið vel hjá Manchester United. Pua er ekkert sérlega hrifinn af Forlan og telur hann ekki góðan í að klára færin. Ef samband Pua við Silva batnar hins vegar ekki má hann líklega að neyðast til að nota Forlan.

hvað meinar hann neyðast til að nota forlan hann brilleraði með í argentísku deildini og var með markahæstu mönnum hann er bara ekki búinn að finna sig með man utd en var nálagt því að skora gegn leverkusen.