HM - EM Spurningakeppni 1 ‘07 (3. jan - 17. jan) - Spurningar & Svör Þá er fyrstu triviunni á nýju ári lokið og hér eru úrslit hennar. Þáttaka, því miður, nánast minkaði um helming en ég þakka þó þeim sem tóku þátt innilega fyrir.

Ég óska þeim þremur sem höfðu öll svör rétt til hamingju.

Batistuta – 20/20
DerWahnsinn – 20/20
Purki – 20/20

Vikkisig – 19/20
Walcott32 – 19/20
Pistons – 18/20
Bulli – 17/20
Gvendur10 - 17/20
Sigurdurjons – 16/20
Kitiboy – 14/20
Ivangudjon – 13/20
ArnarA - 10/20
Galbatorix - 7/20

Spurningar & Svör

1. Tveimur leikmönnum hefur tekist að skora að minnsta kosti 3 mörk í 3 Heimsmeistarakeppnum í knattspyrnu. Hvaða tveir leikmenn eru það? (2 stig)
Svar: Jürgen Klinsmann og Ronaldo. (2 stig)


2. Hefur íslenska landsliðið í knattspyrnu einhverntímann tekið þátt í lokakeppni HM eða EM? Ef svo, hvenær? (1 stig)
Svar: Aldrei. (1 stig)

3. Hvaða heimsmeistarakeppni í knattspyrnu var sú fyrsta til að hafa 32 landslið í lokakeppninni, þar sem liðunum var skipt niður í 8 riðla. (1 stig)
Svar: HM í Frakklandi 1998. (1 stig)

4. Hvar verður EM 2008 haldin? (nóg er að nefna land/lönd) (1 stig)
Svar: Austurríki og Sviss. (1 stig)

5. Adidas Gull Bolta verðlaunin eru veitt hverjum, á hverju heimsmeistarmóti í knattspyrnu? (1 stig)
Svar: Besta leikmanninum. (1 stig)

6. Hvaða Suður-Kóreyski leikmaður er stundum kallaður “Lord of the Rings” af stuðningsmönnum sínum? Hann er kallaður þetta vegna þess að hann kyssir alltaf giftingarhringinn sinn þegar hann skorar mark. Gerði hann þetta einnig á HM 2006. (4 stig)
Svar: Ahn Jung-hwan. (4 stig)

7. Hvaða lönd hafa náð að hampa EM titlinum oftar enn einusinni? (2 stig)
Svar: Þýskaland og Frakkland. (2 stig)

8. Aðeins einu sinni hefur það gerst í lokakeppni EM að sömu tvö liðin hafa leikið opnunarleikinn og úrslitaleikinn. Hvaða lið léku gegn hvort öðru og hvaða ár var þetta? (3 stig)
Svar: Portúgal – Grikkland. EM 2004 (3 stig)

9. Á tíunda áratug síðustu aldar var landi vísað úr lokakeppni EM á einu mótinu. Annað land fékk að taka þátt í staðinn og gerðist hið ótrúlega að það land sigraði mót gegn öllum líkum. Hvaða landi var vísað úr keppni, og hvaða land kom í stað þess og sigraði? (3 stig)
Svar: Júgóslavíu var vísað úr keppni, en Danmörk komu inn í staðinn og urðu meistarar. (3 stig)

10. Eftirfarandi skjáskot sýnir mynd af hvaða leikmanni? (2 stig)
Svar: Tim Cahill. (2 stig)

20 stig alls.