Góðir Hugarar.

Nú eru einungis tveir dagar í leik Íslands og Þýskalands sem fram fer í Hamborg í Þýskalandi. Miklar vangaveltur hafa verið um landsliðshópinn því að mikið hefur verið um meiðsli meðal landslisðmanna okkar. Fyrir nokkrum dögum tilkynntu landsliðsþjálfararnir okkar, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, leikmannahópinn okkar.

Árni Gautur Arason, Birkir Kristinsson, Hermann Hreiðarsson, Kristján Örn Sigurðsson, Pétur Marteinsson, Ívar Ingimarsson, Arnar Þór Viðarsson, Ólafur Örn Bjarnarson, Rúnar Kristinsson, Arnar Grétarsson, Þórður Guðjónsson, Bjarni Guðjónsson, Hjálmar Jónsson, Indriði Sigurðsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Veigar Páll Gunnarsson, Marel Baldvinsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Ríkharður Daðason og Helgi Sigurðsson voru valdnir í hópinn.

Núna ætlum við hérna á Hugi.is/<b>HM</b>, að fá ykkur, gestina, til þess að tippa á hvernig leikurinn fer! Til þess skulið þið svara þessari grein og munum við birta nöfn þeirra sem tippa rétt hérna á síðunni.

Ég tipp að leikurinn fari 1-0 fyrir okkur.

Kveðja,
yngvi