Alþingi Króni minn, Flokkur framfarasinna hefur ekki á stefnuskrá sinni að breyta íslenska fánanum, og það veistu mjög vel sjálfur, enda engin ástæða til. Við eigum afar fallegan fána sem við getum verið afskaplega ánægð með. Ef þú hins vegar þarft að vera með svona nasistaáróður haltu honum þá fyrir þig. Við búum í lýðræðisríki og sennilega eru flestir, ef ekki allir, sammála mér um að við viljum ekkert vita af nasistaáhugamálum þínum. P.s. þú ættir að skammast þín fyrir að afskræma þjóðfánann okkar með því að bendla hann við jafn ömurlegt tákn og hakakrossinn með þeim hætti sem þú gerðir.
Með kveðju,