Samkvæmt könnun sem Talnakönnun gerði fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 22.-24. apríl hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú náð forystunni af R-listanum í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn er með 49,9% á móti 48,7% R-listans samkvæmt könnuninni. Samkvæmt þessu er staðan 8 gegn 7 Sjálfstæðisflokknum í vil.