Veistu, ég hef ekki heyrt jafn góða hugmynd lengi!
Tökum sem dæmi, hvaða rétt hafði Danmörk til að ráða yfir okkur á sínum tíma? Er það kannski út af því að það er Konungsríki? Ég held samt að við gætum örugglega samið við færeyinga um betri kjör og stofnað nýja sýslu sem heitir “Færeyjar”. Þá værum við líka búnir að stækka landhelgina umtalsvert! Auðvitað fengi færeyingar að halda sínu máli og sögu, svo gætum við samið við td. Íslandsflug um að fljúga til færeyjar nokkrum sinnum í viku. Ég held að við ættum að láta Grænland í friði, menningin er þar líka of frábrugðin. Hægt væri að byggja Bónus verslun í Færeyjum svo að þeir gætu líka haft eins lágt vöruverð eins og er á höfuðborgarsvæðinu! og auðvitað ÁTVR verslun! Svo gætu íslenskir bankar haft útibú þar, og svo framvegis!
Það er bara eitt sem gæti hindrað að yfirtaka Íslands yfir Færeyjum verði að veruleika, það er núverandi ríkisstjórn Íslands! Ég efast um að þeir fallist jafn vel á hugmyndina nema þeir fari í alvarlegar umræður við Færeyja!
En ég er samt vissum um að Danska ríkisstjórnin fari í einhverja fýlu út af því!