Getur einhver frætt mig um það hvernig valið var í 16.-30.sæti á R-listanum?? Var það uppstillingarnefnd sem valdi fólk sem hafði gefið kost á sér á listann eða hvernig í ósköpunum var þetta? Hvaða tilgangur er að vera í þessum síðustu sætum? Af hverju er Davið til dæmis í 30.sæti D-listans í stað 28. eða 18. og af hverju er hann eiginlega á listanum? Og Eyþór Arnalds sem vildi ólmur komast í efstu sætin er ekki einu sinni á listanum. Ég fór bara aðeins að velta þessu fyrir mér og langar afskaplega að vita.