Ritter hefur sent inn mynd þar sem hann segir að allir eigi rétt á sínum skoðunum en það er ekki rétt af því að allir verða að fara eftir lögum í því sem þeir segja t.d. er rasismi og tal um tóbak bannað á íslandi og það eru refsingar við því. Það er líka bannað að ljúga upp á aðra og refsingar við því.

Rasismi er vondur og ólýðræðislegur og bara lygi af því að kynþættirnir eru allir jafnir og ekki ólíkir, þessi menningarrasismi er samt miklu verri en hann er sá rasismi sem flokkur framfarasinna og flokkurinn hans Haiders í austurríki nota en þá segja þeir bara að menning litaðra sé verri til þess að fólk vilji ekki fá litaða til landsins. Það er víst löglegt enn þá en ég vil láta setja harðari lög við menningarrasisma.

Þetta tóbak er ógeðslegt og óhollt og af því er bannað að tala um það og reykingum hefur farið fækkandi á íslandi út af þessum lögum. Þessi lög voru sett til þess að vernda fólk fyrir tóbakinu sem hefur drepið hundruði íslendinga á ári.

Það má ekki ljúga upp á fólk af því að það getur verið hryllilegt fyrir þann sem logið er upp á t.d. var hér á huga um daginn logið upp á Hannes Hólmstein og það er brot á íslenskum lögum og hefði átt að dæma þann sem laug upp á hann Hannes.