Ég sá skrifað áberandi stöfum í matsalnum í MH : Síðasti maður að flytja úr landi er vinsamlegast beðinn um að slökkva á eftir sér. Er fólk mikið að hugsa um að flytja úr landi? Ég hef hugsað þetta mikið og lengi og mér finndist hræðilegt að yfirgefa lífið og menninguna hérna heima og flytja í einhvað annað land burt frá öllum mínum vinum og kunningjum. Mér finndist það hræðilegt. En þá fór ég að pæla hversu mikið skárra það væri ef allir myndu flytja á sama stað og stofna þar einhversskonar nýlendu samfélag, ekki að ég kunni vel á þessi orðtök og aðferðir en þið skiljið hugsunina. Er það möguleiki en myndi það ekki í leiðinni eyðileggja landið?
Ég gæti trúað að stór prósenta fólks myndi flýja.