Ég hef lesið bréf ritters um þetta og séð könnunina hér og langar til að segja hvað mér finnst um þetta.

Jón Steinar hefur haft heimskuleg sjónarmið frammi í útvarpi sem geta gefið rögn skilaboð til þeirra sem hlustuðu. Hann líkti einhverjum mönnum við svarta fíkniefnasala eða svipað. Jón er lögfræðingur og á því að vita betur en að gera lítið úr öðrum kynþáttum. Hvað með kynþáttajafnrétti þeirra sem Jón ver? Jón mismunar fólki kannski líka eftir kynþáttum í starfi sínu. Hæsta refsing sem hægt er að láta hann fyrir þetta brot er 2 ár og ég segi að það sé sanngjarnt í fyrsta skipti en ef að hann gerir svona aftur eða ef margir fara að segja svona lygar þá verður að þyngja refsinguna við þessu. Skoðanir eins og þessar eru hættulegar og líka vegna þess að ung börn heyra kannski þessa vitleysu og fá vondar hugmyndir um svarta.

Það má ekki sleppa Jóni við refsingu og viðurkenna þannig rasisma sem gilda skoðun því að rasismi er hatursstefna sem ógnar lýðræði og mismunar kynþáttum og er á móti mannréttindum.