Mér finnst ekki rétt að sýna kommúnistamerkið hér á síðunni eða nein önnur nasistamerki. Fólk verður að skilja hvað þessir menn gerðu. Ég ætla að vona að ég sjái þetta ekki aftur þar sem það særir mig að sjá þetta merki þarna enda var Stalin gyðingahatari eins og Hitler. Ég vona að stefna huga breytist í þessum málum og að svona merki fái ekki birtingu hér aftur. Ég hvet umsjónarmenn huga til þess að sýna ekki svona merki aftur og að banna þá notendur sem senda inn svona merki. Hellingur af fólki er viðkvæmt fyrir svona myndum og þarf ekki að þurfa að sjá þetta. Ég er ekkert að vera viðkvæmur en ég vil ekki láta minna mig á þetta hræðilega tímabil með svona myndum og einhverjir eru kannski sammála mér en öðrum finnst líklega fyndið að ég sendi inn þessa beiðni en þeir mega hafa sína skoðun á því.