Góðan dag.

Nú þegar maður skoðar greinar hér á Huga að þá sér maður ansi oft greinar frá hinum mjög svo þjóðernissinnaða ritter. Og Þar sem flestir sem hafa verið eitthvað að leggja til málanna hér á Huga vita hvaða “Flokki” hann tilheyrir þess vegna væri það að æra óstöðugann að vera að skrifa eitthvað meira gegn þessum “flokki” og hans aðalstefnumálum.

En einnig hef ég tekið eftir því að það er mjög svo stór hluti sem skrifar hér, er á móti þessum skrifum hans ritters. Því hef ég ákveðið að leggja fram þá tillögu mína og athuga hvernig hljómgrunn hún fengi og það er að stofnaður verði flokkur hér á landi sem hefur það í stefnu sinni að íslendingar og innflytjendur verði gert jafnt undir höfði.

En einnig þyrfti nátturlega að vera fleiri mál á stefnuskránni og yrði hún mótuð eftir höfði fólksins í flokknum.

Hvernig lýst ykkur á þessa hugmynd.

Kveðja

wwjd

PS:Ef ÞÉR lýst vel á þessa hugmynd sendu mér þá mail wwjd@hugi.is