Sæl öllsömul,

Vilmari langaði bara að þakka ykkur öllum fyrir ánægjulegar stundir hérna á huga. Markmiðið með þessu skeyti var að biðjast afsökunar á því ef einhver hefur tekið nærri sér hroka og rasisma vilmars gagnvart hvítu fólki. Síðan langar Vilmari til að þakka ykkur öllum fyrir skemmtilegar umræður sem við tókum þátt í. Þótt að Vilmar hafi gefið skít í rök ykkar og neitað þeim bara til þess að vera hrokagikkur og hafa rétt fyrir sér. Þá voru rök ykkar margra hins vegar mjög góð, sama á hvorri skoðuninni þið voruð. Rök Vilmars sýndu hins vegar vel skítlegt eðli hans til þess að þykjast betri og vitrari en aðrir. Vilmar mun ekki koma aftur á huga enda ætlar hann að standa við dánartíma sinn og fremja sjálfsmorð í cyberspace fyrir kl: 24:00 í kvöld. Að lokum langar Vilmari til þess að friðmælast við alla þá sem hann fór illa með.Lifið í friði.

Tekið skal fram að Vilmar var leikinn af fagmanni og því er fólk vinsamlegast beðið um að reyna ekki að leika slíka vitfyrringa, hvorki heima né að heiman.