Þetta var skýringartexti Vilmars undir myns sem hann sendi inn:
“Okkur Evrópubúum steðjar mikil ógn af þessum rasistum sem enn og aftur eru orðnir sjáanlegir í þjóðfélögum okkar. Þeir eru mjög ofbeldisfullir eins og sést á þessari mynd og nú eru alskonar flokkar í Evrópu farnir að taka upp sjónarmið þeirra t.d. flokkurinn Haider í Austurríki og Þjóðarflokkurinn í Danmörku. Hér á Íslandi hafa Félag Íslenskra Þjóðernissinna og Flokkur Framfarasinna tekið upp hætti þessara manna.”

Gallarnir í þessum texta eru fjölmargir en þeim get ég lýst í nokkrum skrefum:
1. Flokkur framfarasinna á ekkert sameiginlegt með FÍÞ, að ég tel, og eru á engan hátt að ég best veit kynþáttahatarar né hvað þá að þeir hafi nokkuð á sínum sakaskrám.
2. Flokkur Haiders í Austurríki heitir að ég held Frelsisflokkurinn ekki flokkurinn Haider.
3. Hvað sannar myndin? Ekkert, mynd, sérstaklega kyrrmynd getur verið látin sanna milljón hluti. Sé þetta nýnasistaómynd þá er um að gera að úthrópa hana, sé maðurinn á myndinni ekki slíkur þá er til einskis að úthrópa þennan tiltekna einstakling.

Aðalmálið er samt kannski að Vilmar hætti að búa til skoðanir fyrir aðra!