Kristnir menn ofsóttir af múslimum í Pakistan

Í fréttum Sjónvarpsins í kvöld var greint frá því að múslimskir skotmenn hefðu ruðst inn í kirkju kristinna manna í Pakistan og hafið skothríð á kirkjugesti í miðri messu. Meðan á þessu hefði staðið hefðu skotmennirnir hrópað múslimsk slagorð eins og “Allah er mikill”, “Lof sé Allah” o.fl. 17 manns létu lífið og 22 særðust í skotárásinni.

Ennfremur var greint frá því að þótt trúfrelsi sé opinberlega viðurkennt í Pakistan séu kristnir menn ofsóttir í landinu fyrir trú sína og hafi verið það lengi vel. Neyðast þeir til að fara huldu höfði enda er kristni talin villutrú meðal múslima og boðun á kristni guðlast.<br><br>Með kveðju,

Hjörtur J.
Með kveðju,