Er einhver stjórnmálamaður sem er hugari? Mér finnst þeir vera svo mikið á eftir í tölvuþróuninni.

Þegar ég var lítill þá skildi ég ekki hvrnig mamma og pabbi nenntu alltaf að fylgjast með þessum stjórnmálamönnum í fréttunum. Þeir voru bara einhverjir gamlir, rykfallnir kallar með skrifstofubleikjuna framan í sér sem voru alltaf að tala um vita gagnlaus mál,efnahagsbólguna, vísitöluskattinn og hvað þetta allt var. Svo stækkaði ég,og þá fór ég að skilja hvað allt þetta var,en stjórnmálamennirnir voru ennþá einhverjir gamlir kallar. Og þegar ég var lítill var kona sem stjórnmálamaður ekki til. Og enn þann dag í dag er það stjórnmálaMAÐUR, ekki kona, og ráðHERRA, ekki ráðherfa(grín.)

Ætli menn verði svona þegar þeir fara á þing?