Einhver annar sem var í þessu kjaftæði? Vona að allir sem í voru hafi skilað auðu svo að þessi …(Hér skuluð þið setja öll þau blótsyrði sem ykkur dettur í hug) menntamálaráðherra leggi þessa vitleysu niður. Fjölda þess framhaldsskólafólks sem styður þessi próf má áreiðanlega telja á fingrum annarrar handar. Á meðan að ég var inní enskuprófinu í morgun skrifaði ég bara ferskeytlur á krassblaðið, t.d.:
Flokkurinn fer nú á ystu nöf
með heimskuleg próf og fíflagang.
Vonum að hann verði í kaldri gröf
Svo ei verði að votta hans heilagang!