Já, maður á bara von á því hvað úr hverju að Króni láti verða að því að stofna aðdáendaklúbb Flokks framfarasinna hér á Huga, svo gífurlegur er áhuginn fyrir okkur. Fyrir það ber að sjálfsögðu að þakka, hehe :)

Til marks um þessa eldheitu aðdáun má nefna að Króni mun nú hafa sent inn 9 greinar á þetta áhugamál frá upphafi og snúast 4 af þeim beint um FF, eða heil 44%. Þetta er nú ekki lítið hlutfall þegar hugað er að því að ýmislegt fleira ætti nú að vera hægt að skrifa um en FF í þessu landi. Eru Króna því enn og aftur færðar þakkir fyrir ósérhlífni sína í þágu FF og þó sérstaklega fyrir þann mikla áhuga sem hann hefur sýnt flokknum frá upphafi :)

Kveðja,

Hjörtur
Með kveðju,