Ég sendi inn mynd af Davið þar sem hann kemur fram eins og sólkonungurinn. En það fær maður svo aftur í hausinn með eftirfarandi rökum hjá stjórnandanum Abigel:



,,Myndinni “Sólkonungurinn” hefur verið hafnað. Skilaboð frá stjórnanda: Þetta er hrein og bein móðgun fyrir mann sem hefur haldið efnahagskerfi Íslendinga uppi sem og persónu hans. Ef þú þekktir hann eins og ég þá myndir þú aldrei setja fram svona niðurlægingu."

Kveðja,
Abigel

Hvaða rugl er í gangi hérna! Er Davíð Oddson of heilagur til þess að skopast með. Sérstaklega þegar skopast er með þá heiftarpólitík sem hann hefur stundað. Davíð Oddson hefur ekkert haldið efnahagskerfi Íslendinga uppi það er alrangt og er þá einungis skoðun Abigel. Ísland hefur þróast svipað og nágrannalöndin í kringum það. Eftir að Jón Baldvin rak EES í gegnum þingið urðu straumhvörf í íslensku efnahagskerfi. Einnig var verðbólgu draugurinn kveðinn niður í ríkisstjórnartíð Steingríms Hermannssonar. Það var gert einmitt Þegar nokkrir verkalýðsforkólfar sömdu frið við atvinnurekendur.

Greinilegt að það ríkir ekki tjáningarfrelsi á þessum vef og ekki verður hróflað við spillingarfánanum.