Það hefur vakið athygli mína að það er allt bannað hérna, Rugby, Box, rótsterk vín, Kool-Aid, tóbaks og áfengisauglýsingar og síðast umfjöllum um tóbak, auglýsingahlé í miðjum dagskrárlið (sem Skjár 1 þverbrítur reyndar) og svo það allra fáránlegasta, M&M´S.

Einhverntímann heyrði ég að maður þyrfti að drekka 3 baðkör af litarefninu í viku til að fá 0,01% líkur á krabba. Þetta er bara smá sýnishorn af bönnuðum hlutum. Með þessu áframhaldi verður allt bannað bráðum.