Mér leikur ögn forvitni á því að fá að vita hverjar hugmyndir menn,
hafa um þá atvinnuþróun, ef þróun skal kalla, sem nú er uppi og
hvað menn sjái fyrir sér sem framtíðaratvinnuverkefni hér á
Íslandi.

Sú þróun atvinnuveganna sem ég gagnrýni við núverandi skipan mála er það sem ég vil kalla verksmiðjubúskap, sífellt stærri eininga,
í sjávarútvegi og landbúnaði,verksmiðjubúskap sem ekki aðeins gengur á skjön við flest öll markmið sjálfbærrar þróunnar, heldur
skerðir einnig það einstaklingsfrelsi sem þjóðin hefur um langan tíma talið sér til tekna.

Það er því brýn þörf að ræða ákveðin atriði varðandi aðalatvinnuvegi þjóðarinnar, svo forða megi því að finnist önnur og
betri aðferðafræði í þessum málum t.d. innan Evrópusambandsins.